Það gerist ýmislegt í Baunalandinu, þó bloggfærslurnar séu ekki tíðar.
Síðasta vika var frekar endaslepp í vinnunni, annar í Hvítasunnu á mánudaginn og Grundlovsdagur á föstudaginn. Á meðan gat fjölskyldan notað tímann og notið sumarsins. Á annan í hvítasunnu kíktum við í heimsókn til dádýranna í Marselisborg.
Dádýrin þarna eru ótrúlega gæf, þetta er bara eins og að gefa öndunum á tjörninni. Hulda stóð sig eins og hetja, á meðan Hafsteinn svaf í kerrunni.
Á fimmtudaginn var Ástralíudagur í Árósum, áströlsk ferðakynning og allar búðir opnar til miðnættis. Hálfgerð menningarnætur- eða þorláksmessustemming, nema hvað maður þekkti engan.
Núna um helgina fórum við svo til bíltúr til Silkiborgar og kíktum á Silkiborgarvötnin. Þar fundum við íslenska fjölskyldu að veiða eitthvað sem líktist marhnútum við höfnina í Silkiborg. Við fundum hins vegar engan róló þar. Fjöldi og gæði rólóa er orðinn góður mælikvarði á borgir og bæi. Þar skora t.d. Hadsten og Hammel frekar hátt með gormahesta á göngugötunum.
Talandi um rólóa, þá vorum við líka að uppgötva gæsluvöllinn í Sabro Þar er ofurróla sem getur tekið við heilum barnaskara, rosa klifrugrind, og ekki síst geitur og hænur.
Um helgina var líka opið hús í Sabro Kro sem er Hótel Örkin í þessu Hveragerði. Við mælum alveg með kaffihlaðborðinu þar.
Síðasta vika var frekar endaslepp í vinnunni, annar í Hvítasunnu á mánudaginn og Grundlovsdagur á föstudaginn. Á meðan gat fjölskyldan notað tímann og notið sumarsins. Á annan í hvítasunnu kíktum við í heimsókn til dádýranna í Marselisborg.
Dádýrin þarna eru ótrúlega gæf, þetta er bara eins og að gefa öndunum á tjörninni. Hulda stóð sig eins og hetja, á meðan Hafsteinn svaf í kerrunni.Á fimmtudaginn var Ástralíudagur í Árósum, áströlsk ferðakynning og allar búðir opnar til miðnættis. Hálfgerð menningarnætur- eða þorláksmessustemming, nema hvað maður þekkti engan.
Núna um helgina fórum við svo til bíltúr til Silkiborgar og kíktum á Silkiborgarvötnin. Þar fundum við íslenska fjölskyldu að veiða eitthvað sem líktist marhnútum við höfnina í Silkiborg. Við fundum hins vegar engan róló þar. Fjöldi og gæði rólóa er orðinn góður mælikvarði á borgir og bæi. Þar skora t.d. Hadsten og Hammel frekar hátt með gormahesta á göngugötunum.
Talandi um rólóa, þá vorum við líka að uppgötva gæsluvöllinn í Sabro Þar er ofurróla sem getur tekið við heilum barnaskara, rosa klifrugrind, og ekki síst geitur og hænur.

Um helgina var líka opið hús í Sabro Kro sem er Hótel Örkin í þessu Hveragerði. Við mælum alveg með kaffihlaðborðinu þar.

Rétt eftir að við fundum tönnina í Hafsteini fengum við fyrstu heimsóknina í nýja húsið :) Guðrún Björk frænka Bjössa og Óli maðurinn hennar komu í heimsókn frá Kaupmannahöfn. Þau eiga von á litlum gutta eftir 3 vikur og voru að sækja barnarúmið sitt en það fékk að fljóta með gámnum okkar. Við grilluðum og spiluðum Catan fram eftir nóttu. Það var mjög gaman (enda vann ég) en ég verð samt að viðurkenna að mér leið eins og við værum að halda framhjá Gísla og Sonju (Sorrý). Þau voru þau fyrstu til að gista í gestaherberginu og fór held ég bara ágætlega um þau innan um kassana.
Sæta stelpan mín er annars mjög dugleg. Hún tekur alveg frekjuköst inn á milli en er yfirleitt ótrúlega dugleg og góð. Dundar sér út í eitt. Hún gleymir sér alveg í dúkkuleik, les fyrir dúkkurnar sínar, gefur þeim að borða og heldur þeim alveg í rútínu. Hún virðist ekkert mjög leið á því að vera alltaf heima með mömmu á daginn en þó segist hún stundum sakna allra vinkvenna sinna heima á Íslandi dúllan.


