Ég ákvað að nú væri loksins kominn tími til að láta heyra í okkur.

Lífið okkar er komið í nokkuð fastar skorður hérna í Danmörkunni. Hulda Sóley fer á
leikskólann sinn fjóra daga í viku frá 8:15 - 14:30. Hún er orðin nokkuð sátt við að fara og er farin að skilja slatta í dönsku en þetta var ansi erfitt til að byrja með. Hafsteinn er svo hjá dagmömmu frá 8:15 og þar til hann vaknar af lúrnum sínum sem er yfirleitt um eitt leitið. Hann er farinn að una sér vel þar. Pabbinn fer áfram í vinnuna sína og nú þarf mamman bara að fara að finna sér vinnu.

Hafsteini fer stöðugt fram. Það vinsælasta þennan mánuðinn hefur verið að ganga um með aðstoð alls sem hönd á festir. Við gáfum honum gönguvagn í fyrirfram afmælisgjöf sem hann notar óspart. Hann er ekki búinn að finna beygjurnar ennþá en hefur þann haginn á að ganga áfram með hann eins langt og hann kemst og standa svo upp í honum og ýta sér eins og á hlaupahjóli til baka. Hann er að taka fjórar tennur í einu núna í efri gómnum, tvær eru komnar í gegn og hinar eiga eftir að koma niður á næstu dögum. Hann er líka farinn að myndast við að tala, segir oma (koma), úpa (súpa), uda (Hulda), mamma (sem þýðir enn bæði mamma og pabbi ;)), og svo ef hann sér eitthvað gott smjattar hann :). Í vikunni fór hann svo að klappa.

Hulda Sóley er líka ofsalega dugleg. Fylgist með öllu sem fer fram í kringum hana. Hún er farin að geta skrifað nafnið sitt nokkurn veginn rétt og er að hennar sögn alveg tilbúin að fara að byrja bara í skóla. Hún ætlar að verða teikniprinsessa og prinsessa sem passar allar litlu prinsessurnar og kóngana þegar hún verður stór. Hún spekulerar mikið og spurði mig til dæmis í gær "mamma, afhverju lét Jesús ekki himininn vera bleikan?" Í sumar lærði hún að róla sjálf og klifra upp í topp á klifurgrindinni. Á fimmtudaginn byrjar hún í fimleikum og hlakkar mikið til. Af því tilefni keyptum við bleikan Hello Kitty fimleikabol handa henni sem hún er ofsalega ánægð með :o)

Legoland er í miklu uppáhaldi í fjölskyldunni. Erum við búin að fara þar þrisvar sinnum síðan 1. ágúst og eigum eftir að fara nokkrum sinnum í viðbót áður en það lokar þar. Hulda er hugrakkari í tækjnunum en ég átti von á og hefur látið sig vaða í allt sem leyfilegt er fyrir hennar aldur.

Hafsteini finnst líka mjög gaman en það er alveg þónokkuð af tækjum þar sem öll fjölskyldan getur farið í saman.

Jæja, best að hafa þetta ekki of langt núna.

Við sendum öllum kveðju úr dönsku rigningunni ;o)
Hæ kæru Bjössi og Gunna. En hvað þetta eru yndislegar fréttir og myndir. Flottir krakkar :) Gangi ykkur vel áfram með baununum og njótið Danaveldis. Mæli með hjólaferð í Legoland. Við hjóluðum frá Gautaborg til Legolands með strákana og það er besta ferð sem við höfum nokkurn tíma farið í. 11 daga hjólatúr, en Jótland var yndislegt. Vonandi fæ ég að hitta Hafstein næst þegar þið komið, hef ekki enn hitt hann :)
SvaraEyðaKær kveðja
Birna
Gaman að fylgjast með ykkur :D
SvaraEyðaBestu kvehðjur, Sigrún Edda