Síðasta vika var ótrúlega viðburðarík hjá okkur, á þriðjudaginn var kóræfing hjá mér, á miðvikudaginn fengum við gott fólk í mat og á fimmtudaginn fór ég í bæinn í föndurbúðaleiðangur, Hulda fór á fyrstu fimleikaæfinguna sína og svo var Hausthátíð í leikskólanum hennar á eftir. Hulda var nú eitthvað stressuð með þetta allt saman og sagði hálf grátandi "æh mamma þetta verður svo erfiður dagur á morgun", þegar hún var á leiðinni í háttinn á miðvikudagskvöldið ;)Dagurinn gekk svo bara ótrúlega vel, Hulda stóð sig frábærlega í fimleikunum, skellti sér bara í allt með bros á vör á meðan margir aðrir krakkar hengu í pilsfaldinum út í horni. Ég kunni ekki við að taka myndir því það voru engir með myndavélina á lofti en ég ætla að reyna að gera það næst. Hulda var búin að vinna sér inn fyrir bleikum Hello Kitty leikfimibol úr H&M og voru fjórar aðrar pæjur í eins bolum :) H&M er með það alveg á hreinu hvað er vinsælast :)
Í gær fórum við svo í Legoland ;) já einu sinni enn... Hulda var búin að haga sér svo vel í vikunni að við vildum verðlauna hana. Við fórum lengri leiðina að þessu sinni og stoppuðum í Vejle til að fá okkur hádegismat.
Vejle er ótrúlega falleg borg og eigum við örugglega eftir að fara oftar þangað í framtíðinni. Við höfum aldrei séð eins mikið af fólki í Legolandi eins og í gær. Þeir eru með barnatónleika á hverjum laugardegi í september til að draga að fólk og það er þokkalega að virka. Við fórum bara í tvö tæki og tókum því svo bara rólega á tónleikunum. Sigurd's Bjørnetrio tróð upp. Það samanstóð af þremur mönnum í skemmtilega köflóttum jakkafötum og birninum. Björninn er tuskuhundur en það vita samt allir að hann er björn. Með bandinu voru svo fimm dansandi stelpur sem Hulda hafði mjög gaman af.
Hún dansaði með allan tímann líka og Hafsteinn tók undir svona við og við og klappaði svo með þegar það var klappað... rosa duglegur :)
Vejle er ótrúlega falleg borg og eigum við örugglega eftir að fara oftar þangað í framtíðinni. Við höfum aldrei séð eins mikið af fólki í Legolandi eins og í gær. Þeir eru með barnatónleika á hverjum laugardegi í september til að draga að fólk og það er þokkalega að virka. Við fórum bara í tvö tæki og tókum því svo bara rólega á tónleikunum. Sigurd's Bjørnetrio tróð upp. Það samanstóð af þremur mönnum í skemmtilega köflóttum jakkafötum og birninum. Björninn er tuskuhundur en það vita samt allir að hann er björn. Með bandinu voru svo fimm dansandi stelpur sem Hulda hafði mjög gaman af.
Hún dansaði með allan tímann líka og Hafsteinn tók undir svona við og við og klappaði svo með þegar það var klappað... rosa duglegur :)
Eftir Legolandið fórum við í heimsókn til Ágústar, Fanneyjar og strákanna. Þar fengum við kaffi og gómsætan kvöldmat. Það var mjög ljúft, fyrir utan skiptitöskuatvikið sem við tölum ekki meira um ;)Í dag var haldið í messu í Sabro kirkju. Ástæðan var ekki sú að fjölskyldan væri allt í einu orðin svona trúrækin heldur er það inní dagskrá kórsins að styðja sálmasönginn tvær messur á önn. Ég held svei mér þá að mér hafi þótt messan skemmtilegri hérna heldur en á Íslandi, þó svo hún færi fram á dönsku!!! Hulda var voðalega stillt í messunni en fannst sálmarnir þó helst til langir, vildi mun frekar hafa stutt lög eins og í sunnudagaskólanum. Hafsteinn svaf hins vegar eins og steinn í vagninum sínum fyrir utan kirkjuna.
Seinni partinn fórum við svo á stóra róló og prufukeyrðum jafnvægishjólið sem Kristinn Ómar lánaði Huldu, en það er svona hjól án pedala sem er mjög vinsælt hérna úti. Hún stóð sig ótrúlega vel á hjólinu þó svo að hún hafi nú verið nokkuð þreytt þegar við komum heim.
Seinni partinn fórum við svo á stóra róló og prufukeyrðum jafnvægishjólið sem Kristinn Ómar lánaði Huldu, en það er svona hjól án pedala sem er mjög vinsælt hérna úti. Hún stóð sig ótrúlega vel á hjólinu þó svo að hún hafi nú verið nokkuð þreytt þegar við komum heim.Að lokum er hér smá myndband af Hafsteini í fótbolta... takið eftir að fötin hans eru í stíl við boltann ;)
Væri nú alveg gaman að heyra frá ykkur :)
Kveðja
Gunna bauni
Lífið okkar er komið í nokkuð fastar skorður hérna í Danmörkunni. Hulda Sóley fer á
Hafsteini fer stöðugt fram. Það vinsælasta þennan mánuðinn hefur verið að ganga um með aðstoð alls sem hönd á festir. Við gáfum honum gönguvagn í fyrirfram afmælisgjöf sem hann notar óspart. Hann er ekki búinn að finna beygjurnar ennþá en hefur þann haginn á að ganga áfram með hann eins langt og hann kemst og standa svo upp í honum og ýta sér eins og á hlaupahjóli til baka. Hann er að taka fjórar tennur í einu núna í efri gómnum, tvær eru komnar í gegn og hinar eiga eftir að koma niður á næstu dögum. Hann er líka farinn að myndast við að tala, segir oma (koma), úpa (súpa), uda (Hulda), mamma (sem þýðir enn bæði mamma og pabbi ;)), og svo ef hann sér eitthvað gott smjattar hann :). Í vikunni fór hann svo að klappa.
Hulda Sóley er líka ofsalega dugleg. Fylgist með öllu sem fer fram í kringum hana. Hún er farin að geta skrifað nafnið sitt nokkurn veginn rétt og er að hennar sögn alveg tilbúin að fara að byrja bara í skóla. Hún ætlar að verða teikniprinsessa og prinsessa sem passar allar litlu prinsessurnar og kóngana þegar hún verður stór. Hún spekulerar mikið og spurði mig til dæmis í gær "mamma, afhverju lét Jesús ekki himininn vera bleikan?" Í sumar lærði hún að róla sjálf og klifra upp í topp á klifurgrindinni. Á fimmtudaginn byrjar hún í fimleikum og hlakkar mikið til. Af því tilefni keyptum við bleikan Hello Kitty fimleikabol handa henni sem hún er ofsalega ánægð með :o)
Legoland er í miklu uppáhaldi í fjölskyldunni. Erum við búin að fara þar þrisvar sinnum síðan 1. ágúst og eigum eftir að fara nokkrum sinnum í viðbót áður en það lokar þar. Hulda er hugrakkari í tækjnunum en ég átti von á og hefur látið sig vaða í allt sem leyfilegt er fyrir hennar aldur.
Hafsteini finnst líka mjög gaman en það er alveg þónokkuð af tækjum þar sem öll fjölskyldan getur farið í saman.
Jæja, best að hafa þetta ekki of langt núna.
Við sendum öllum kveðju úr dönsku rigningunni ;o)
Dádýrin þarna eru ótrúlega gæf, þetta er bara eins og að gefa öndunum á tjörninni. Hulda stóð sig eins og hetja, á meðan Hafsteinn svaf í kerrunni.

Rétt eftir að við fundum tönnina í Hafsteini fengum við fyrstu heimsóknina í nýja húsið :) Guðrún Björk frænka Bjössa og Óli maðurinn hennar komu í heimsókn frá Kaupmannahöfn. Þau eiga von á litlum gutta eftir 3 vikur og voru að sækja barnarúmið sitt en það fékk að fljóta með gámnum okkar. Við grilluðum og spiluðum Catan fram eftir nóttu. Það var mjög gaman (enda vann ég) en ég verð samt að viðurkenna að mér leið eins og við værum að halda framhjá Gísla og Sonju (Sorrý). Þau voru þau fyrstu til að gista í gestaherberginu og fór held ég bara ágætlega um þau innan um kassana.
Sæta stelpan mín er annars mjög dugleg. Hún tekur alveg frekjuköst inn á milli en er yfirleitt ótrúlega dugleg og góð. Dundar sér út í eitt. Hún gleymir sér alveg í dúkkuleik, les fyrir dúkkurnar sínar, gefur þeim að borða og heldur þeim alveg í rútínu. Hún virðist ekkert mjög leið á því að vera alltaf heima með mömmu á daginn en þó segist hún stundum sakna allra vinkvenna sinna heima á Íslandi dúllan.


