Við erum ekkert voðalega heppin með veðrið hérna í Danmörku... í apríl var þvílík blíða en svo þegar við komum út í maí kólnaði, fór að blása og rigna á köflum. Það lagaðist svo í viku (vikuna sem við vorum í Hollandi) og hefur svo núna verið misgott... skýfall einn daginn og sól og blíða hinn daginn.
Í gær var t.d. sól og blíða. Deginum eyddum við að mestu leyti innandyra í rúminu, að jafna okkur eftir andvökunótt. Meira að segja Hulda Sóley sem sofnar aldrei á daginn svaf í 2 tíma. Í dag þegar allir eru hressari er hellirigning. Heppin...
Eyrun eru eitthvað að stríða Hafsteini ennþá... fórum með hann til læknis í gærmorgun en hann vildi ekki meina að það væri bólga, bara vökvi. Karlinn var samt þvílíkt kvalinn í fyrri nótt. Þeir sögðu okkur bara að gefa honum parasetamol en í Danmörku er samt ekki seldir stílar fyrir börn léttari en 10 kg og ekki aðrir nefdropar en saltvatn fyrir börn undir tveggja ára. Skrítið... dönsk börn fá sennilega aldrei hita og kvef áður en þau verða tveggja ;)
Það kom sirkus í bæinn okkar fyrir tæpri viku. Minnsti en huggulegasti sirkus landsins eins og hann var kallaður, Cirkus Krone. Hulda var pínu efins til að byrja með og sat með teppið hans Hafsteins yfir hausnum og gægðist út... Trúðurinn vakti mesta athygli hjá henni en hún fylgdist vel með honum undan teppinu og tók meðal annars eftir því að hann heilsaði stelpunni fyrir aftan hana og bauð henni gleðileg jól. Núna er hún alltaf í sirkusleik, leikur trúðinn og óskar öllum gleðilegra jóla og hlær svo hástöfum... þetta fannst henni sko fyndið. Þetta var nú ekkert eftirminnilegasti sirkus sem við höfum farið í, það voru t.d. engin dýr því dýraflutningabíllinn þeirra var bilaður ;) Þetta var hins vegar alveg ágætis afþreying og skemmtileg kvöldstund og Hulda skemmti sér mjög vel.
Jæja ætla að spila við skottuna meðan stráksi sefur í rigningunni!
Takk fyrir kommentin :)
Kveðja
Gunna
26.5.09
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Bara sama "blíðan" og á íslandi semsagt:O)
SvaraEyðaÞað fyndna er að ég hef verið í DK 3 sinnum og hef aldrei verið þar í sól ... hmmm..
Var komin á þá skoðun eftir síðustu ferð að þar kæmi aldrei sól :O)
Gaman að lesa bloggið!! Heyrumst skvís og þú knúsar krakkana (K)
Sonja