13.9.09

Haustið á leiðinni...

Jæja þá er svona aðeins farið að kólna hérna þó svo að enn komi heitir dagar inn á milli. Veðrið hérna er eiginlega enn undarlegra en á Íslandi. Maður getur alls ekki treyst því að það haldist þurrt þó svo að það sé heiðskýrt að morgni eða að dagurinn verði kaldur þó svo að það sé kalt þegar við höldum í leikskólann og þurfa því krakkarnir að hafa allan skalann af fötum með sér.
Síðasta vika var ótrúlega viðburðarík hjá okkur, á þriðjudaginn var kóræfing hjá mér, á miðvikudaginn fengum við gott fólk í mat og á fimmtudaginn fór ég í bæinn í föndurbúðaleiðangur, Hulda fór á fyrstu fimleikaæfinguna sína og svo var Hausthátíð í leikskólanum hennar á eftir. Hulda var nú eitthvað stressuð með þetta allt saman og sagði hálf grátandi "æh mamma þetta verður svo erfiður dagur á morgun", þegar hún var á leiðinni í háttinn á miðvikudagskvöldið ;)
Dagurinn gekk svo bara ótrúlega vel, Hulda stóð sig frábærlega í fimleikunum, skellti sér bara í allt með bros á vör á meðan margir aðrir krakkar hengu í pilsfaldinum út í horni. Ég kunni ekki við að taka myndir því það voru engir með myndavélina á lofti en ég ætla að reyna að gera það næst. Hulda var búin að vinna sér inn fyrir bleikum Hello Kitty leikfimibol úr H&M og voru fjórar aðrar pæjur í eins bolum :) H&M er með það alveg á hreinu hvað er vinsælast :)

Í gær fórum við svo í Legoland ;) já einu sinni enn... Hulda var búin að haga sér svo vel í vikunni að við vildum verðlauna hana. Við fórum lengri leiðina að þessu sinni og stoppuðum í Vejle til að fá okkur hádegismat. Vejle er ótrúlega falleg borg og eigum við örugglega eftir að fara oftar þangað í framtíðinni. Við höfum aldrei séð eins mikið af fólki í Legolandi eins og í gær. Þeir eru með barnatónleika á hverjum laugardegi í september til að draga að fólk og það er þokkalega að virka. Við fórum bara í tvö tæki og tókum því svo bara rólega á tónleikunum. Sigurd's Bjørnetrio tróð upp. Það samanstóð af þremur mönnum í skemmtilega köflóttum jakkafötum og birninum. Björninn er tuskuhundur en það vita samt allir að hann er björn. Með bandinu voru svo fimm dansandi stelpur sem Hulda hafði mjög gaman af. Hún dansaði með allan tímann líka og Hafsteinn tók undir svona við og við og klappaði svo með þegar það var klappað... rosa duglegur :)
Eftir Legolandið fórum við í heimsókn til Ágústar, Fanneyjar og strákanna. Þar fengum við kaffi og gómsætan kvöldmat. Það var mjög ljúft, fyrir utan skiptitöskuatvikið sem við tölum ekki meira um ;)

Í dag var haldið í messu í Sabro kirkju. Ástæðan var ekki sú að fjölskyldan væri allt í einu orðin svona trúrækin heldur er það inní dagskrá kórsins að styðja sálmasönginn tvær messur á önn. Ég held svei mér þá að mér hafi þótt messan skemmtilegri hérna heldur en á Íslandi, þó svo hún færi fram á dönsku!!! Hulda var voðalega stillt í messunni en fannst sálmarnir þó helst til langir, vildi mun frekar hafa stutt lög eins og í sunnudagaskólanum. Hafsteinn svaf hins vegar eins og steinn í vagninum sínum fyrir utan kirkjuna. Seinni partinn fórum við svo á stóra róló og prufukeyrðum jafnvægishjólið sem Kristinn Ómar lánaði Huldu, en það er svona hjól án pedala sem er mjög vinsælt hérna úti. Hún stóð sig ótrúlega vel á hjólinu þó svo að hún hafi nú verið nokkuð þreytt þegar við komum heim.

Að lokum er hér smá myndband af Hafsteini í fótbolta... takið eftir að fötin hans eru í stíl við boltann ;)


Væri nú alveg gaman að heyra frá ykkur :)
Kveðja
Gunna bauni

5.9.09

Jú við erum á lífi :)

Ég ákvað að nú væri loksins kominn tími til að láta heyra í okkur.Lífið okkar er komið í nokkuð fastar skorður hérna í Danmörkunni. Hulda Sóley fer á leikskólann sinn fjóra daga í viku frá 8:15 - 14:30. Hún er orðin nokkuð sátt við að fara og er farin að skilja slatta í dönsku en þetta var ansi erfitt til að byrja með. Hafsteinn er svo hjá dagmömmu frá 8:15 og þar til hann vaknar af lúrnum sínum sem er yfirleitt um eitt leitið. Hann er farinn að una sér vel þar. Pabbinn fer áfram í vinnuna sína og nú þarf mamman bara að fara að finna sér vinnu.
Hafsteini fer stöðugt fram. Það vinsælasta þennan mánuðinn hefur verið að ganga um með aðstoð alls sem hönd á festir. Við gáfum honum gönguvagn í fyrirfram afmælisgjöf sem hann notar óspart. Hann er ekki búinn að finna beygjurnar ennþá en hefur þann haginn á að ganga áfram með hann eins langt og hann kemst og standa svo upp í honum og ýta sér eins og á hlaupahjóli til baka. Hann er að taka fjórar tennur í einu núna í efri gómnum, tvær eru komnar í gegn og hinar eiga eftir að koma niður á næstu dögum. Hann er líka farinn að myndast við að tala, segir oma (koma), úpa (súpa), uda (Hulda), mamma (sem þýðir enn bæði mamma og pabbi ;)), og svo ef hann sér eitthvað gott smjattar hann :). Í vikunni fór hann svo að klappa.
Hulda Sóley er líka ofsalega dugleg. Fylgist með öllu sem fer fram í kringum hana. Hún er farin að geta skrifað nafnið sitt nokkurn veginn rétt og er að hennar sögn alveg tilbúin að fara að byrja bara í skóla. Hún ætlar að verða teikniprinsessa og prinsessa sem passar allar litlu prinsessurnar og kóngana þegar hún verður stór. Hún spekulerar mikið og spurði mig til dæmis í gær "mamma, afhverju lét Jesús ekki himininn vera bleikan?" Í sumar lærði hún að róla sjálf og klifra upp í topp á klifurgrindinni. Á fimmtudaginn byrjar hún í fimleikum og hlakkar mikið til. Af því tilefni keyptum við bleikan Hello Kitty fimleikabol handa henni sem hún er ofsalega ánægð með :o)

Legoland er í miklu uppáhaldi í fjölskyldunni. Erum við búin að fara þar þrisvar sinnum síðan 1. ágúst og eigum eftir að fara nokkrum sinnum í viðbót áður en það lokar þar. Hulda er hugrakkari í tækjnunum en ég átti von á og hefur látið sig vaða í allt sem leyfilegt er fyrir hennar aldur.
Hafsteini finnst líka mjög gaman en það er alveg þónokkuð af tækjum þar sem öll fjölskyldan getur farið í saman.
Jæja, best að hafa þetta ekki of langt núna.
Við sendum öllum kveðju úr dönsku rigningunni ;o)

8.6.09

Sumar og sól



Það gerist ýmislegt í Baunalandinu, þó bloggfærslurnar séu ekki tíðar.

Síðasta vika var frekar endaslepp í vinnunni, annar í Hvítasunnu á mánudaginn og Grundlovsdagur á föstudaginn. Á meðan gat fjölskyldan notað tímann og notið sumarsins. Á annan í hvítasunnu kíktum við í heimsókn til dádýranna í Marselisborg. Dádýrin þarna eru ótrúlega gæf, þetta er bara eins og að gefa öndunum á tjörninni. Hulda stóð sig eins og hetja, á meðan Hafsteinn svaf í kerrunni.

Á fimmtudaginn var Ástralíudagur í Árósum, áströlsk ferðakynning og allar búðir opnar til miðnættis. Hálfgerð menningarnætur- eða þorláksmessustemming, nema hvað maður þekkti engan.

Núna um helgina fórum við svo til bíltúr til Silkiborgar og kíktum á Silkiborgarvötnin. Þar fundum við íslenska fjölskyldu að veiða eitthvað sem líktist marhnútum við höfnina í Silkiborg. Við fundum hins vegar engan róló þar. Fjöldi og gæði rólóa er orðinn góður mælikvarði á borgir og bæi. Þar skora t.d. Hadsten og Hammel frekar hátt með gormahesta á göngugötunum.

Talandi um rólóa, þá vorum við líka að uppgötva gæsluvöllinn í Sabro Þar er ofurróla sem getur tekið við heilum barnaskara, rosa klifrugrind, og ekki síst geitur og hænur.

Um helgina var líka opið hús í Sabro Kro sem er Hótel Örkin í þessu Hveragerði. Við mælum alveg með kaffihlaðborðinu þar.

31.5.09

Fyrsta tönnin

Núna síðustu vikurnar er mikið að gerast hjá Hafsteini Marel. Hann er farinn að sitja einn og óstuddur, farinn að skríða hraðar um húsið, farinn að reyna að toga sig á fætur og farinn að borða eins og herforingi. Í gær fann ég svo fyrstu tönnina hans. Þetta er allt að gerast svo hratt... hann er svo duglegur. Tönnin er svo lítil ennþá að hún næsti ekki á mynd en í staðinn setti ég tannburstamynd inn. Hann er ekkert smá gáfaður, vissi alveg hvað hann ætti að gera við tannburstann um leið og hann fékk hann í hendurnar... ;o)
Rétt eftir að við fundum tönnina í Hafsteini fengum við fyrstu heimsóknina í nýja húsið :) Guðrún Björk frænka Bjössa og Óli maðurinn hennar komu í heimsókn frá Kaupmannahöfn. Þau eiga von á litlum gutta eftir 3 vikur og voru að sækja barnarúmið sitt en það fékk að fljóta með gámnum okkar. Við grilluðum og spiluðum Catan fram eftir nóttu. Það var mjög gaman (enda vann ég) en ég verð samt að viðurkenna að mér leið eins og við værum að halda framhjá Gísla og Sonju (Sorrý). Þau voru þau fyrstu til að gista í gestaherberginu og fór held ég bara ágætlega um þau innan um kassana.

Veðrið hefur verið frábært síðustu daga og erum við búin að eyða dögunum á göngu. Á föstudaginn gengum við í bruggverskmiðju bæjarins. Niels, eigandi bruggverksmiðjunnar, bjó á Íslandi fyrir rúmlega 30 árum og fékk pabbi lánaðan Bjölluna hans til að keyra mömmu á spítalann þegar ég fæddist. Við keyptum af honum öl til að færa pabba gamla þegar við komum til Íslands. Bruggverksmiðjan er 2 km fyrir utan bæinn og var mjög gaman að ganga þangað í góða veðrinu. Á leiðinni til baka fundum við nýjan róló. Þar hittum við skólausu stelpuna Juliu. Við stoppuðum góðan tíma á róló og spjölluðum við þessa skemmtilegu sjálfstæðu stelpu. Hún var 5 ára og kenndi okkur töluvert í dönsku með spjallinu, örugglega án þess að hafa hugmynd um það.

Í gær skoðuðum við svo smábæina Hadsten og Hammel. Skemmtilegir smábæir með fallegum göngugötum. Í dag fórum við svo í Den gamle By sem er svipaður Árbæjarsafninu heima á Íslandi. Það var mjög gaman að skoða gömlu húsin í góða veðrinu. Við safnið er svo mjög stór almenningsgarður. Við kíktum lítinn hring í hluta garðsins og þar lág fólk fáklætt í góða veðrinu. Hulda fann svakalega fínt klifurtré og var ekkert smá dugleg að príla.


Hulda fékk ný gleraugu í póstinum um daginn... voða fín bleik með glimmeri. Hún er í skýjunum með þau, sæta stelpan mín. Hún virðist þó aðeins vera að læknast af bleiku sýkinni því hún er farin að velja aðra liti til að fara í á morgnanna. Ég held að það hafi eitthvað með áhuga hennar á Disney prinsessunum að gera því Öskubuska er í bláum kjól, Fríða í gulum og Jasmin í grænum BUXUM. Hún sér því að prinsessur geta verið prinsessur þó svo þær séu ekki alltaf í bleikum kjólum. Þyrnirós er þó í bleikum kjól og bleikur er ennþá það allra fallegasta sem hún veit, sérstaklega glansandi bleikur (alveg eins og gleraugun hennar).
Sæta stelpan mín er annars mjög dugleg. Hún tekur alveg frekjuköst inn á milli en er yfirleitt ótrúlega dugleg og góð. Dundar sér út í eitt. Hún gleymir sér alveg í dúkkuleik, les fyrir dúkkurnar sínar, gefur þeim að borða og heldur þeim alveg í rútínu. Hún virðist ekkert mjög leið á því að vera alltaf heima með mömmu á daginn en þó segist hún stundum sakna allra vinkvenna sinna heima á Íslandi dúllan.

Jæja nóg í bili :)

Ég er með það á stefnuskránni að setja fleiri myndir inn á barnaland og þá líka af húsinu og garðinum og svona... þetta er allt að gerast :)

Ég verð nú að hafa frá einhverju að segja næst!

Kveðja
Gunna

26.5.09

Rigning í dag

Við erum ekkert voðalega heppin með veðrið hérna í Danmörku... í apríl var þvílík blíða en svo þegar við komum út í maí kólnaði, fór að blása og rigna á köflum. Það lagaðist svo í viku (vikuna sem við vorum í Hollandi) og hefur svo núna verið misgott... skýfall einn daginn og sól og blíða hinn daginn.

Í gær var t.d. sól og blíða. Deginum eyddum við að mestu leyti innandyra í rúminu, að jafna okkur eftir andvökunótt. Meira að segja Hulda Sóley sem sofnar aldrei á daginn svaf í 2 tíma. Í dag þegar allir eru hressari er hellirigning. Heppin...

Eyrun eru eitthvað að stríða Hafsteini ennþá... fórum með hann til læknis í gærmorgun en hann vildi ekki meina að það væri bólga, bara vökvi. Karlinn var samt þvílíkt kvalinn í fyrri nótt. Þeir sögðu okkur bara að gefa honum parasetamol en í Danmörku er samt ekki seldir stílar fyrir börn léttari en 10 kg og ekki aðrir nefdropar en saltvatn fyrir börn undir tveggja ára. Skrítið... dönsk börn fá sennilega aldrei hita og kvef áður en þau verða tveggja ;)

Það kom sirkus í bæinn okkar fyrir tæpri viku. Minnsti en huggulegasti sirkus landsins eins og hann var kallaður, Cirkus Krone. Hulda var pínu efins til að byrja með og sat með teppið hans Hafsteins yfir hausnum og gægðist út... Trúðurinn vakti mesta athygli hjá henni en hún fylgdist vel með honum undan teppinu og tók meðal annars eftir því að hann heilsaði stelpunni fyrir aftan hana og bauð henni gleðileg jól. Núna er hún alltaf í sirkusleik, leikur trúðinn og óskar öllum gleðilegra jóla og hlær svo hástöfum... þetta fannst henni sko fyndið. Þetta var nú ekkert eftirminnilegasti sirkus sem við höfum farið í, það voru t.d. engin dýr því dýraflutningabíllinn þeirra var bilaður ;) Þetta var hins vegar alveg ágætis afþreying og skemmtileg kvöldstund og Hulda skemmti sér mjög vel.

Jæja ætla að spila við skottuna meðan stráksi sefur í rigningunni!

Takk fyrir kommentin :)

Kveðja

Gunna

24.5.09

Lífið í Danmörku






















Jæja þá er rétt að láta aðeins vita af okkur.

Við stofnuðum nýtt blogg fyrir fjölskylduna. Nafnið er vel við hæfi þar sem Hulda er elskar allt sem kemur að prinsessum og vill helst vera í prinsessukjól með prinsessumálningu alla daga og Hafsteinn lifir lífinu með tunguna út úr sér, smakkandi á öllu sem fyrir ber ;)

Ferðin út gekk vel, bæði fyrir Bjössa með bátnum og mig og krakkana með flugi. Ég var svo heppin að hún Lóló skólasystir mín úr HR fylgdi okkur í flugvélinni. Hún vann Huldu á sitt band ótrúlega fljótt og talar Hulda ennþá um ömmu Lóló.

Húsið er ótrúlega fínt þó svo hitaveitan hafi aðeins verið að stríða okkur. Hún komst fyrst í lag í fyrradag og er það allt annað líf.

Við í fjölskyldunni sjáum mismunandi kosti við húsið. Það sem Bjössa finnst best er háaloftið, en yfir nær öllu húsinu, (sem er 120 fm) er háaloft sem gleypir alla kassa. Það er stór geymur og lætur Bjössi sig dreyma á kvöldin um hvað hann myndi gera við háaloftið ef hann ætti húsið. Hulda er hrifin af garðinum og herberginu sínu en hún dundar sér endalaust bæði úti og inni og tekur þessum breytingum ótrúlega vel. Hafsteinn elskar stóru gluggana en þeir ná alveg niður í gólf og getur hann þá séð systur sína út í garði. Mamman er hrifnust af praktísku atriðunum, yfirbyggðum þurrkaðstöðum og björtu alrými þar sem maður hefur góða yfirsýn yfir börnin stór og smá.

Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt hérna. Hollandsferðin okkar hefur sitt að segja í þeim efnum. Það var ótrúlega gaman að koma aftur á kunnuglegar slóðir, og gistum við á ferðinni eina nótt í Belgíu. Þetta var hins vegar ansi strembið, mikil keyrsla og ekki bætti úr skák að litli karlinn var með eyrnabólgu og því hver klukkutími í bíl erfiður. En með hjálp stíla og stóru systur hófst þetta allt saman. Í Hollandi gistum við í sumarbústaðarhverfi á vegum Center parcs. Við vorum svakalega heppin með veður og sleiktum við Hulda og Hafsteinn sólina á róló á meðan Bjössi var í vinnunni. Hulda fór tvisvar í einskonar daggæslu þarna í formi starfskynninga. Fyrri starfskynningin var kynning á lífi prinsessa og riddara. Allt prógrammið fór fram á hollensku og þýsku en Hulda tók þátt hiklaust og stóð sig mjög vel. Allar stelpurnar voru klæddar upp í prinsessukjóla, með kórónu og tilheyrandi málningu en strákarnir (sem voru alveg heilir 2) voru í riddarabúning. Kynningin endaði svo með skrúðgöngu og brúðuleikhúsi. Þetta var bara alveg sniðið fyrir skottuna sem er í prinsessuleik alla daga allan daginn!!! Seinni starfskynningin var starf bakarans og var Hulda alveg til í að fara þó svo að hún vissi að allt færi fram á útlensku og mamma ekki með. Þegar ég sótti hana og spurði hana út í þetta hafði hún greinilega ekki alveg náð þræðinum því hún sagðist bara hafa verið að leira með gulum leir allan tímann og skyldi ekkert hvaðan kökurnar í pokanum sem hún var með komu. Þegar við skoðuðum kökurnar betur varð hún alveg hissa og sagði: "Konurnar hafa látið leirinn harðna" :)

Það hefur gengið frekar hægt að koma sér fyrir. Einhvern veginn verður manni lítið úr verki á daginn með hoppandi þriggja ára stelpu og eyrnabólgustrák sem sefur stutt í einu. Svo viðurkennum við nú alveg að við erum ekkert þau skipulögðustu í heimi ;) Við gátum hins vegar gert heilmikið á uppstigningardag og núna um helgina og er þetta allt að taka á sig mynd. Gestaherbergið er enn fullt af kössum og verður það örugglega þar til fyrstu gestirnir boða komu sína ef ég þekki okkur rétt ;) Við erum líka komin með kennitölur, bankareikninga og síma þannig að það hefur nú heilmikið gerst.

Umhverfið hérna er alveg æðislegt, allt svo grænt og fallegt. Göngustígur liggur fram hjá húsinu í gegnum bæinn, framhjá róló, leikskóla og vöggustofu. Krakkarnir eru á biðlista á þessum leikskóla/vöggustofu og verður æðislegt ef þau komast að þar en annars sýnist okkur aðrir leikskólar í bænum alveg jafn notalegir þó svo að þeir séu lengra í burtu. Í dag prófuðum við að labba í aðra átt frá húsinu enn við gerum venjulega og fórum þá framhjá kirkjunni í bænum og inn í skóg. Ótrúlega skemmtilegt og fallegt allt saman. Ég kann líka mjög vel við að vera í svona smábæ en hér í Sabro búa álíka margir og í Hveragerði. Hér er verslun sem selur næstum hvað sem er og er opin alla daga frá 8-19 en það er mjög óvenjulegt hérna í DK. Yfirleitt er allt lokað á sunnudögum og stutt opið á laugardögum. Hér höfum við því allt sem okkur vantar þó svo að það hefði mátt vera læknir í bænum. Læknisþjónustuna þurfum við að sækja í annan bæ 7 km frá. Við fórum þangað á þriðjudaginn með Hafstein og lýst okkur bara ljómandi vel á heimilislækninn okkar.

Jæja, nú fer þetta að verða komið ágætis uppdate á lífi okkar :) Myndavélin varð óvart eftir á Íslandi í stressinu en ég fékk nýjan síma með símaáskriftinni minni með mjög góðri myndavél með flassi þannig að myndaleysið er á enda.

Bið að heilsa ykkur öllum

Kveðja

Gunna bauni