Núna síðustu vikurnar er mikið að gerast hjá Hafsteini Marel. Hann er farinn að sitja einn og óstuddur, farinn að skríða hraðar um húsið, farinn að reyna að toga sig á fætur og farinn að borða eins og herforingi. Í gær fann ég svo fyrstu tönnina hans. Þetta er allt að gerast svo hratt... hann er svo duglegur. Tönnin er svo lítil ennþá að hún næsti ekki á mynd en í staðinn setti ég tannburstamynd inn. Hann er ekkert smá gáfaður, vissi alveg hvað hann ætti að gera við tannburstann um leið og hann fékk hann í hendurnar... ;o)
Rétt eftir að við fundum tönnina í Hafsteini fengum við fyrstu heimsóknina í nýja húsið :) Guðrún Björk frænka Bjössa og Óli maðurinn hennar komu í heimsókn frá Kaupmannahöfn. Þau eiga von á litlum gutta eftir 3 vikur og voru að sækja barnarúmið sitt en það fékk að fljóta með gámnum okkar. Við grilluðum og spiluðum Catan fram eftir nóttu. Það var mjög gaman (enda vann ég) en ég verð samt að viðurkenna að mér leið eins og við værum að halda framhjá Gísla og Sonju (Sorrý). Þau voru þau fyrstu til að gista í gestaherberginu og fór held ég bara ágætlega um þau innan um kassana.Veðrið hefur verið frábært síðustu daga og erum við búin að eyða dögunum á göngu. Á föstudaginn gengum við í bruggverskmiðju bæjarins. Niels, eigandi bruggverksmiðjunnar, bjó á Íslandi fyrir rúmlega 30 árum og fékk pabbi lánaðan Bjölluna hans til að keyra mömmu á spítalann þegar ég fæddist. Við keyptum af honum öl til að færa pabba gamla þegar við komum til Íslands. Bruggverksmiðjan er 2 km fyrir utan bæinn og var mjög gaman að ganga þangað í góða veðrinu. Á leiðinni til baka fundum við nýjan róló. Þar hittum við skólausu stelpuna Juliu. Við stoppuðum góðan tíma á róló og spjölluðum við þessa skemmtilegu sjálfstæðu stelpu. Hún var 5 ára og kenndi okkur töluvert í dönsku með spjallinu, örugglega án þess að hafa hugmynd um það.
Í gær skoðuðum við svo smábæina Hadsten og Hammel. Skemmtilegir smábæir með fallegum göngugötum. Í dag fórum við svo í Den gamle By sem er svipaður Árbæjarsafninu heima á Íslandi. Það var mjög gaman að skoða gömlu húsin í góða veðrinu. Við safnið er svo mjög stór almenningsgarður. Við kíktum lítinn hring í hluta garðsins og þar lág fólk fáklætt í góða veðrinu. Hulda fann svakalega fínt klifurtré og var ekkert smá dugleg að príla.

Hulda fékk ný gleraugu í póstinum um daginn... voða fín bleik með glimmeri. Hún er í skýjunum með þau, sæta stelpan mín. Hún virðist þó aðeins vera að læknast af bleiku sýkinni því hún er farin að velja aðra liti til að fara í á morgnanna. Ég held að það hafi eitthvað með áhuga hennar á Disney prinsessunum að gera því Öskubuska er í bláum kjól, Fríða í gulum og Jasmin í grænum BUXUM. Hún sér því að prinsessur geta verið prinsessur þó svo þær séu ekki alltaf í bleikum kjólum. Þyrnirós er þó í bleikum kjól og bleikur er ennþá það allra fallegasta sem hún veit, sérstaklega glansandi bleikur (alveg eins og gleraugun hennar).
Sæta stelpan mín er annars mjög dugleg. Hún tekur alveg frekjuköst inn á milli en er yfirleitt ótrúlega dugleg og góð. Dundar sér út í eitt. Hún gleymir sér alveg í dúkkuleik, les fyrir dúkkurnar sínar, gefur þeim að borða og heldur þeim alveg í rútínu. Hún virðist ekkert mjög leið á því að vera alltaf heima með mömmu á daginn en þó segist hún stundum sakna allra vinkvenna sinna heima á Íslandi dúllan.
Sæta stelpan mín er annars mjög dugleg. Hún tekur alveg frekjuköst inn á milli en er yfirleitt ótrúlega dugleg og góð. Dundar sér út í eitt. Hún gleymir sér alveg í dúkkuleik, les fyrir dúkkurnar sínar, gefur þeim að borða og heldur þeim alveg í rútínu. Hún virðist ekkert mjög leið á því að vera alltaf heima með mömmu á daginn en þó segist hún stundum sakna allra vinkvenna sinna heima á Íslandi dúllan.Jæja nóg í bili :)
Ég er með það á stefnuskránni að setja fleiri myndir inn á barnaland og þá líka af húsinu og garðinum og svona... þetta er allt að gerast :)
Ég verð nú að hafa frá einhverju að segja næst!
Kveðja
Gunna



