8.6.09

Sumar og sól



Það gerist ýmislegt í Baunalandinu, þó bloggfærslurnar séu ekki tíðar.

Síðasta vika var frekar endaslepp í vinnunni, annar í Hvítasunnu á mánudaginn og Grundlovsdagur á föstudaginn. Á meðan gat fjölskyldan notað tímann og notið sumarsins. Á annan í hvítasunnu kíktum við í heimsókn til dádýranna í Marselisborg. Dádýrin þarna eru ótrúlega gæf, þetta er bara eins og að gefa öndunum á tjörninni. Hulda stóð sig eins og hetja, á meðan Hafsteinn svaf í kerrunni.

Á fimmtudaginn var Ástralíudagur í Árósum, áströlsk ferðakynning og allar búðir opnar til miðnættis. Hálfgerð menningarnætur- eða þorláksmessustemming, nema hvað maður þekkti engan.

Núna um helgina fórum við svo til bíltúr til Silkiborgar og kíktum á Silkiborgarvötnin. Þar fundum við íslenska fjölskyldu að veiða eitthvað sem líktist marhnútum við höfnina í Silkiborg. Við fundum hins vegar engan róló þar. Fjöldi og gæði rólóa er orðinn góður mælikvarði á borgir og bæi. Þar skora t.d. Hadsten og Hammel frekar hátt með gormahesta á göngugötunum.

Talandi um rólóa, þá vorum við líka að uppgötva gæsluvöllinn í Sabro Þar er ofurróla sem getur tekið við heilum barnaskara, rosa klifrugrind, og ekki síst geitur og hænur.

Um helgina var líka opið hús í Sabro Kro sem er Hótel Örkin í þessu Hveragerði. Við mælum alveg með kaffihlaðborðinu þar.

4 ummæli:

  1. Svona rólur eru líka vonsælar hjá rólufíklinum í Barnard Castle! http://picasaweb.google.com/idunn.helgadottir/OktBer2008#5259668549802126626

    SvaraEyða
  2. Æ sæt :) Þetta eru líka snilldar rólur

    SvaraEyða
  3. Sætir krakkar. Ég hlakka til að knúsa þau á sunnudaginn.

    SvaraEyða
  4. Þetta átti að vera amman
    fk amman

    SvaraEyða