
Jæja þá er rétt að láta aðeins vita af okkur.
Við stofnuðum nýtt blogg fyrir fjölskylduna. Nafnið er vel við hæfi þar sem Hulda er elskar allt sem kemur að prinsessum og vill helst vera í prinsessukjól með prinsessumálningu alla daga og Hafsteinn lifir lífinu með tunguna út úr sér, smakkandi á öllu sem fyrir ber ;)
Ferðin út gekk vel, bæði fyrir Bjössa með bátnum og mig og krakkana með flugi. Ég var svo heppin að hún Lóló skólasystir mín úr HR fylgdi okkur í flugvélinni. Hún vann Huldu á sitt band ótrúlega fljótt og talar Hulda ennþá um ömmu Lóló.
Húsið er ótrúlega fínt þó svo hitaveitan hafi aðeins verið að stríða okkur. Hún komst fyrst í lag í fyrradag og er það allt annað líf.
Við í fjölskyldunni sjáum mismunandi kosti við húsið. Það sem Bjössa finnst best er háaloftið, en yfir nær öllu húsinu, (sem er 120 fm) er háaloft sem gleypir alla kassa. Það er stór geymur og lætur Bjössi sig dreyma á kvöldin um hvað hann myndi gera við háaloftið ef hann ætti húsið. Hulda er hrifin af garðinum og herberginu sínu en hún dundar sér endalaust bæði úti og inni og tekur þessum breytingum ótrúlega vel. Hafsteinn elskar stóru gluggana en þeir ná alveg niður í gólf og getur hann þá séð systur sína út í garði. Mamman er hrifnust af praktísku atriðunum, yfirbyggðum þurrkaðstöðum og björtu alrými þar sem maður hefur góða yfirsýn yfir börnin stór og smá.
Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt hérna. Hollandsferðin okkar hefur sitt að segja í þeim efnum. Það var ótrúlega gaman að koma aftur á kunnuglegar slóðir, og gistum við á ferðinni eina nótt í Belgíu. Þetta var hins vegar ansi strembið, mikil keyrsla og ekki bætti úr skák að litli karlinn var með eyrnabólgu og því hver klukkutími í bíl erfiður. En með hjálp stíla og stóru systur hófst þetta allt saman. Í Hollandi gistum við í sumarbústaðarhverfi á vegum Center parcs. Við vorum svakalega heppin með veður og sleiktum við Hulda og Hafsteinn sólina á róló á meðan Bjössi var í vinnunni. Hulda fór tvisvar í einskonar daggæslu þarna í formi starfskynninga. Fyrri starfskynningin var kynning á lífi prinsessa og riddara. Allt prógrammið fór fram á hollensku og þýsku en Hulda tók þátt hiklaust og stóð sig mjög vel. Allar stelpurnar voru klæddar upp í prinsessukjóla, með kórónu og tilheyrandi málningu en strákarnir (sem voru alveg heilir 2) voru í riddarabúning. Kynningin endaði svo með skrúðgöngu og brúðuleikhúsi. Þetta var bara alveg sniðið fyrir skottuna sem er í prinsessuleik alla daga allan daginn!!! Seinni starfskynningin var starf bakarans og var Hulda alveg til í að fara þó svo að hún vissi að allt færi fram á útlensku og mamma ekki með. Þegar ég sótti hana og spurði hana út í þetta hafði hún greinilega ekki alveg náð þræðinum því hún sagðist bara hafa verið að leira með gulum leir allan tímann og skyldi ekkert hvaðan kökurnar í pokanum sem hún var með komu. Þegar við skoðuðum kökurnar betur varð hún alveg hissa og sagði: "Konurnar hafa látið leirinn harðna" :)
Það hefur gengið frekar hægt að koma sér fyrir. Einhvern veginn verður manni lítið úr verki á daginn með hoppandi þriggja ára stelpu og eyrnabólgustrák sem sefur stutt í einu. Svo viðurkennum við nú alveg að við erum ekkert þau skipulögðustu í heimi ;) Við gátum hins vegar gert heilmikið á uppstigningardag og núna um helgina og er þetta allt að taka á sig mynd. Gestaherbergið er enn fullt af kössum og verður það örugglega þar til fyrstu gestirnir boða komu sína ef ég þekki okkur rétt ;) Við erum líka komin með kennitölur, bankareikninga og síma þannig að það hefur nú heilmikið gerst.
Umhverfið hérna er alveg æðislegt, allt svo grænt og fallegt. Göngustígur liggur fram hjá húsinu í gegnum bæinn, framhjá róló, leikskóla og vöggustofu. Krakkarnir eru á biðlista á þessum leikskóla/vöggustofu og verður æðislegt ef þau komast að þar en annars sýnist okkur aðrir leikskólar í bænum alveg jafn notalegir þó svo að þeir séu lengra í burtu. Í dag prófuðum við að labba í aðra átt frá húsinu enn við gerum venjulega og fórum þá framhjá kirkjunni í bænum og inn í skóg. Ótrúlega skemmtilegt og fallegt allt saman. Ég kann líka mjög vel við að vera í svona smábæ en hér í Sabro búa álíka margir og í Hveragerði. Hér er verslun sem selur næstum hvað sem er og er opin alla daga frá 8-19 en það er mjög óvenjulegt hérna í DK. Yfirleitt er allt lokað á sunnudögum og stutt opið á laugardögum. Hér höfum við því allt sem okkur vantar þó svo að það hefði mátt vera læknir í bænum. Læknisþjónustuna þurfum við að sækja í annan bæ 7 km frá. Við fórum þangað á þriðjudaginn með Hafstein og lýst okkur bara ljómandi vel á heimilislækninn okkar.

Jæja, nú fer þetta að verða komið ágætis uppdate á lífi okkar :) Myndavélin varð óvart eftir á Íslandi í stressinu en ég fékk nýjan síma með símaáskriftinni minni með mjög góðri myndavél með flassi þannig að myndaleysið er á enda.
Bið að heilsa ykkur öllum
Kveðja
Gunna bauni
Við stofnuðum nýtt blogg fyrir fjölskylduna. Nafnið er vel við hæfi þar sem Hulda er elskar allt sem kemur að prinsessum og vill helst vera í prinsessukjól með prinsessumálningu alla daga og Hafsteinn lifir lífinu með tunguna út úr sér, smakkandi á öllu sem fyrir ber ;)
Ferðin út gekk vel, bæði fyrir Bjössa með bátnum og mig og krakkana með flugi. Ég var svo heppin að hún Lóló skólasystir mín úr HR fylgdi okkur í flugvélinni. Hún vann Huldu á sitt band ótrúlega fljótt og talar Hulda ennþá um ömmu Lóló.
Húsið er ótrúlega fínt þó svo hitaveitan hafi aðeins verið að stríða okkur. Hún komst fyrst í lag í fyrradag og er það allt annað líf.
Við í fjölskyldunni sjáum mismunandi kosti við húsið. Það sem Bjössa finnst best er háaloftið, en yfir nær öllu húsinu, (sem er 120 fm) er háaloft sem gleypir alla kassa. Það er stór geymur og lætur Bjössi sig dreyma á kvöldin um hvað hann myndi gera við háaloftið ef hann ætti húsið. Hulda er hrifin af garðinum og herberginu sínu en hún dundar sér endalaust bæði úti og inni og tekur þessum breytingum ótrúlega vel. Hafsteinn elskar stóru gluggana en þeir ná alveg niður í gólf og getur hann þá séð systur sína út í garði. Mamman er hrifnust af praktísku atriðunum, yfirbyggðum þurrkaðstöðum og björtu alrými þar sem maður hefur góða yfirsýn yfir börnin stór og smá.Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt hérna. Hollandsferðin okkar hefur sitt að segja í þeim efnum. Það var ótrúlega gaman að koma aftur á kunnuglegar slóðir, og gistum við á ferðinni eina nótt í Belgíu. Þetta var hins vegar ansi strembið, mikil keyrsla og ekki bætti úr skák að litli karlinn var með eyrnabólgu og því hver klukkutími í bíl erfiður. En með hjálp stíla og stóru systur hófst þetta allt saman. Í Hollandi gistum við í sumarbústaðarhverfi á vegum Center parcs. Við vorum svakalega heppin með veður og sleiktum við Hulda og Hafsteinn sólina á róló á meðan Bjössi var í vinnunni. Hulda fór tvisvar í einskonar daggæslu þarna í formi starfskynninga. Fyrri starfskynningin var kynning á lífi prinsessa og riddara. Allt prógrammið fór fram á hollensku og þýsku en Hulda tók þátt hiklaust og stóð sig mjög vel. Allar stelpurnar voru klæddar upp í prinsessukjóla, með kórónu og tilheyrandi málningu en strákarnir (sem voru alveg heilir 2) voru í riddarabúning. Kynningin endaði svo með skrúðgöngu og brúðuleikhúsi. Þetta var bara alveg sniðið fyrir skottuna sem er í prinsessuleik alla daga allan daginn!!! Seinni starfskynningin var starf bakarans og var Hulda alveg til í að fara þó svo að hún vissi að allt færi fram á útlensku og mamma ekki með. Þegar ég sótti hana og spurði hana út í þetta hafði hún greinilega ekki alveg náð þræðinum því hún sagðist bara hafa verið að leira með gulum leir allan tímann og skyldi ekkert hvaðan kökurnar í pokanum sem hún var með komu. Þegar við skoðuðum kökurnar betur varð hún alveg hissa og sagði: "Konurnar hafa látið leirinn harðna" :)
Það hefur gengið frekar hægt að koma sér fyrir. Einhvern veginn verður manni lítið úr verki á daginn með hoppandi þriggja ára stelpu og eyrnabólgustrák sem sefur stutt í einu. Svo viðurkennum við nú alveg að við erum ekkert þau skipulögðustu í heimi ;) Við gátum hins vegar gert heilmikið á uppstigningardag og núna um helgina og er þetta allt að taka á sig mynd. Gestaherbergið er enn fullt af kössum og verður það örugglega þar til fyrstu gestirnir boða komu sína ef ég þekki okkur rétt ;) Við erum líka komin með kennitölur, bankareikninga og síma þannig að það hefur nú heilmikið gerst.
Umhverfið hérna er alveg æðislegt, allt svo grænt og fallegt. Göngustígur liggur fram hjá húsinu í gegnum bæinn, framhjá róló, leikskóla og vöggustofu. Krakkarnir eru á biðlista á þessum leikskóla/vöggustofu og verður æðislegt ef þau komast að þar en annars sýnist okkur aðrir leikskólar í bænum alveg jafn notalegir þó svo að þeir séu lengra í burtu. Í dag prófuðum við að labba í aðra átt frá húsinu enn við gerum venjulega og fórum þá framhjá kirkjunni í bænum og inn í skóg. Ótrúlega skemmtilegt og fallegt allt saman. Ég kann líka mjög vel við að vera í svona smábæ en hér í Sabro búa álíka margir og í Hveragerði. Hér er verslun sem selur næstum hvað sem er og er opin alla daga frá 8-19 en það er mjög óvenjulegt hérna í DK. Yfirleitt er allt lokað á sunnudögum og stutt opið á laugardögum. Hér höfum við því allt sem okkur vantar þó svo að það hefði mátt vera læknir í bænum. Læknisþjónustuna þurfum við að sækja í annan bæ 7 km frá. Við fórum þangað á þriðjudaginn með Hafstein og lýst okkur bara ljómandi vel á heimilislækninn okkar.
Jæja, nú fer þetta að verða komið ágætis uppdate á lífi okkar :) Myndavélin varð óvart eftir á Íslandi í stressinu en ég fékk nýjan síma með símaáskriftinni minni með mjög góðri myndavél með flassi þannig að myndaleysið er á enda.
Bið að heilsa ykkur öllum
Kveðja
Gunna bauni
ohhh hvað þetta hljómar allt vel !!! Bara að maður gæti skroppið svona af og til þá væri þetta ennú betra...Hver veit nema maður komi nær þér í náinni framtíð:O)
SvaraEyðaSakna ykkar allra og hlakka til að sjá ykkur bráðum!!!
kv
Sonja
Gaman að fá að fylgjast með ykkur :D
SvaraEyðaBestu kveðjur, Sigrún Edda
Búin að tengja á ykkur af Iðunnarblogginu - vona að það sé í lagi - kveðjur í baunalandið.
SvaraEyðaUna
Frábært að sjá hvað ykkur líst vel á allt saman!!! ohhh fæ þvílíkan Danmerkurfiðring að lesa þetta, stóóórhættulegt ;-) Gangi ykkur svakalega vel og njótið alls þess sem Dene hefur upp á að bjóða... mange knus úr Firðinum Anna
SvaraEyðaGleymdi að segja - það væri gaman að fá betri myndir af því hvernig þið búið, svona þegar búið er að taka upp úr flestum kössum...
SvaraEyða